Föstudagslagið í boði Garðars

Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Garðars Árnasonar í flugrekstrardeild og um val sitt segir hann:

Af því að ég er eftirlitsmaður í flugrekstrardeild þá varð ég að finna lag tengt flugi.  „Fly on the wings of love“ er skemmtilegt, en ekki nógu mikið stuð.  „Fly me to the moon“ er ágætt líka.

Hér er ekki gleymd perla en í raun falin perla. Nánast óþekkt nema innan afar þröngs hóps. En ég set mig í sæti kyndilbera til að þessi perla sem gæti orðið sígild fái að óma sem mest, sérstaklega ef þið hlustið á lagið á Spotify, því jú ótrúlega en satt þá hvílir lagið þar í skugga og myrkri og gæti fært lagahöfundi aukin stefgjöld, skilst að hann hafi þénað 125 kr. á síðasta ári.

Lagið er „Fluffudiskó“ sem flutt er af gleðisveitinni Faxarnir sem samanstóð af flugmönnum Flugfélags Íslands, áður en félagið bar nafnið Air Iceland Connect.

Sveitin hefur því miður, mörgum til ama lagt upp laupana því sumir úr sveitinni hafa farið til annarra flugrekenda og einn meðlimanna er látinn.

Myndbandið lýsir vel gleðinni sem fylgir því að starfa í flugi og bregður fyrir flugmönnum sem og flugfreyjum félagsins. 

Til aðstoðar fékk sveitin hina margrómuðu Diskó Dívu, Helgu Möller.

Ég skora á samstarfsmann minn Martein Guðjónsson fyrir næstu viku.