Einbreiðum brúm fækkar og umferðaröryggi eykst

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, vígðu í lok júní tvær nýjar tvíbreiðar brýr, annars vegar yfir Núpsvötn og hins vegar Hverfisfljót. Þetta kemur fram í frétt á vef innviðaráðuneytisins. Með tilkomu þeirra fækkar einbreiðum brúm enn frekar á Hringveginum. Þær eru nú 29 talsins og stefnt er að því að engin einbreið brú verði á Hringveginum í lok næstu samgönguáætlunar sem gildir til 2038. 


Brúin yfir Núpsvötn

Nýja tvíbreiða brúin yfir Núpsvötn er 138 metra löng og kemur í stað brúarinnar sem reist var árið 1973 og er 420 metra löng. Í verkinu var einnig innifalin gerð vegtenginga og endurbygging núverandi vegar á um 2 kílómetra kafla auk áningarstaðar. Brúin, ásamt vegtengingum, var hönnuð af verkfræðistofunni VSÓ Ráðgjöf. Brúin er eftirspennt steinsteypt brú með steyptu gólfi í fimm höfum. Nýr vegur og ný brú eru í nýju vegstæði á 1,1 kílómetra löngum kafla. Einnig var byggður nýr áningarstaður vestan nýju brúarinnar

Nýja og gamla brúin yfir Núpsvötn

Brúin yfir Núpsvötn var opnuð fyrir umferð í byrjun júní 2023.


Brúin yfir Hverfisfljót

Nýja tvíbreiða brúin yfir Hverfisfljót er 74 metra löng og er staðsett um 20 metrum neðan við gömlu brúna sem reist var árið 1968 og var 60 metra löng. Einnig var innifalið í verkinu vegtenging og endurbygging á um 2 kílómetra kafla auk gerð áningarstaðar. Brúin og vegir voru hönnuð á hönnunardeild Vegagerðarinnar. Brúin er samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í þremur höfum. Nýr vegur og brúin eru í nýju vegstæði á 1,1 kílómetra kafla og endurbyggður vegur í fyrra vegsvæði einn kílómetri. Byggður var nýr áningarstaður í stað fyrri áningarstaðar sem lenti undir vegtengingu brúarinnar.

Brúin yfir Hverfisfljót var opnuð fyrir umferð í nóvember 2022.

Sjá frétt á vef stjórnarráðsins
Sjá frétt á vef Vegagerðarinnar