Föstudagslagið – sumargleði

Við tökum hlé á föstudagslaginu yfir hásumarið en komum tvíefld til leiks á ný í ágúst. Í tilefni þess að margir eru á leið í sumarfrí er samt rétt að kveðja með lagi sem kemur öllum í sumarfrísfílinginn hvort sem leiðin liggur út á land í útilegu eða á suðræna sólarströnd. Læt ítölsku frumgerðina fylgja líka 🙂

Um lagið sagði Þorgeir í viðtali árið 2020 á RÚV:

„Eitt vinsælasta lag Sumargleðinnar er Ég fer í fríið sem Þorgeir syngur. Hann ætlaði sér ekki að syngja lagið og fékk vægt áfall þegar hann sá að Ragnar Bjarnason hafði tilkynnt þjóðinni í blaðaviðtali að Þorgeir Ástvaldsson kæmi með frumraun sína í dægurlagasöng á nýrri plötu Sumargleðinnar. Sagan á bak við lagið er þannig að Þorgeir sat í Hljóðrita ásamt þeim Ragnari Bjarnasyni og Gunnari Þórðarsyni þegar þeir uppgötva að það vantar sjómannalag á þessa fyrstu plötu Sumargleðinnar. Þorgeir átti gott safn af ítalskri tónlist heima hjá sér og bauðst til að finna gott lag sem væri hægt að íslenska. „Ég sem sagt hleyp heim og gríp þar tvær plötur, önnur var með Toto Cutogno og heitir Innamorati, einfaldur söngur um ást, unað og allt þetta ítalska,” segir Þorgeir. Hann hugsaði um hvað lagið ætti að vera og vildi fá texta sem fjallaði um sjómann á leið í frí í landi.

Hann velti fyrir sér hver gæti snarað fram íslenskum texta og datt þá í hug að tala við Iðunni Steinsdóttur. „Ég fer til hennar að kvöldi til, ég er sjálfur á leiðinni til Ítalíu. Ég átti Ítalíutúrinn áður en ég kláraði plötuna. Ég hringi bjöllunni hjá Iðunni að kveldi, tíu eða hálf ellefu. Ég segi: „Komdu blessuð og sæl, löng saga stutt. Getur þú búið til texta fyrir þetta ítalska lag hérna?” Hann útskýrði í stuttu máli um hvað lagið átti að vera og spyr hvort hún geti klárað textann. Iðunn samþykkti að semja íslenskan texta við lagið en brá vissulega að hann þyrfti að helst að vera klár sama kvöld. „Ég veit ekkert hvernig hún fór að því en hún skilaði mér textanum á hádegi daginn eftir,” segir Þorgeir.

Þorgeir hélt svo til Ítalíu þar sem hann starfaði sem fararstjóri og í flugvélinni á leiðinni heim var hann að glugga í Morgunblaðið. „Þar var viðtal við Ragnar Bjarnason. Segir frá nýrri plötu sem er að koma út með Sumargleðinni. „Þetta er æðisleg plata. Þarna er Þorgeir með frumraun sína sem dægurlagasöngvari.” Flugvélin, hún féll um mörg þúsund fet,” segir Þorgeir. Lagið sló svo í gegn og Þorgeir gat hvergi komið fram án þess að syngja lagið. Hann sagði einmitt við Ragnar Bjarnason að hann yrði fegnastur því þegar hann myndi hætta í Sumargleðinni að þurfa ekki að syngja Ég fer í fríið hundrað sinnum á hverju kvöldi. „Þá sló hann á öxlina á mér. „Heyrðu Þorgeir, ég söng Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig árið 1960, ég söng það síðast í gær,” segir Þorgeir.” “

Hafið það gott í fríinu. Gleðilegt sumar!




Ítalska frumgerðin Innamorati með Toto Cutugno: