
Stafræna ökunámið er mikið framfaraskref eins og foreldrar á þriðju vaktinni sem átt hafa ökunema í pappírsnámi geta vottað. Nú er úr sögunni endalaust skutl til sýslumanns, að ógleymdri streitunni við að passa upp á ökunámsbókina. Hugmyndin um stafræna ferlið fæddist hjá Samgöngustofu og deild leyfisveitinga og ökunáms leiddi verkefnið og samstarf við aðrar stofnanir sem að því koma.
Verkefnið er um það bil að vekja athygli víðar en á Íslandi, því þessa dagana vinnur AWS Institute að gerð kynningarmyndar (e. Case Study) um stafrænt ökunám á Íslandi. AWS Institute er batterí á vegum Amazon sem framleiðir fræðsluefni fyrir vefinn, til að styðja við stafræna umbreytingu hjá hinu opinbera um víða veröld.
Í síðustu viku voru tekin viðtöl við fulltrúa Samgöngustofu, þau Sigurjónu Sigurðardóttur og Lárus Long. Bæði stóðu þau sig einkar vel og voru okkur öllum til mikils sóma. Við hlökkum að sjálfsögðu mikið til að sjá afraksturinn!

