
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra kynnti í gær tillögu að samgönguáætlun til fimmtán ára 2024-2038. Í frétt á vef innviðaráðuneytisins kemur fram að lögð sé áhersla á að auka öryggi í samgöngum, stytta vegalengdir, tengja byggðir og umhverfis- og loftslagsmál. Margar mikilvægar vegaframkvæmdir eru fyrirhugaðar með áherslu á aðskilnað akstursstefna, fækkun einbreiðra brúa og lagningu bundins slitlags á tengivegi. Þá verða framlög stóraukin til viðhalds vega. Framlög til uppbyggingar á innanlandsflugvöllum aukast til muna með nýju varaflugvallargjaldi og stefnt er að því að byggja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli. Samhliða er lögð fram sérstök jarðgangaáætlun til 30 ára með forgangsröðun á fjórtán jarðgangakostum. Mælt verður fyrir samgönguáætlun á Alþingi næsta haust.
Gert er ráð fyrir að á fimmtán ára tímabili samgönguáætlunar verði 909 milljörðum kr. varið samgangna þar af um 263 ma.kr. á fyrsta fimm ára tímabili áætlunarinnar. Til viðbótar bætast við verkefni sem verða fjármögnuð með samvinnuverkefnum, s.s. ný Sundabraut og brú yfir Ölfusá.