
Sjávarútvegsráðstefnan 2023 verður haldin í Hörpu dagana 2.-3. nóvember. Ágætt fyrir þau ykkar sem ætlið að mæta að setja þessar dagsetningar í dagatalið.
Ráðstefnan ber í ár yfirskriftina „Samfélagsleg ábyrgð í sjávarútvegi“ og hafa skipuleggjendur nú þegar sett inn upplýsingar um þær málstofur sem verða í boði. Nokkrar málstofur gætu höfðað til fólks hér innanhúss svo sem:
- Samfélagsleg ábyrgð sjávarútvegs
- Verndun hafsvæða (30fyrir30) – áhrif á sjávarútveg
- Orkuskipti og innviðauppbygging
- Upplýsingagjöf um sjálfbærni: Hvar liggja tækifærin?
- Siglum í átt að hringrásarhagkerfi
Hér má nálgast nánari lýsingu á málstofunum.