Fundur ECAC í vikunni


Samstarf evrópskra flugmálastjórna er mjög gott og haldnir eru reglulegir fundir undir hatti ráðstefnu evrópskra flugmálastjórna (ECAC). Einn slíkur fundur var í byrjun þessarar viku þar sem fulltrúar Samgöngustofu tóku þátt. Efni fundarins var nokkuð hefðbundið og má þar nefna upplýsingagjöf frá starfi aðalráðs Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) sem Valdís Aðalsteinsdóttir sá um en hún gegnir um þessar mundir hlutverki þess fulltrúa sem sér um samræmingu milli Evrópulanda í ráðinu.

Juan Carlos Salazar framkvæmdastjóri ICAO tók einnig þátt í fundinum ásamt fulltrúum EASA og EUROCONTROL. Stríðið í Úkraínu fékk töluverða umræðu og þá hvernig önnur lönd geta stutt við landið bæði nú og í þeirri uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað að stríði loknu, sem vonandi verður fyrr en seinna. Málefni sem snúa að réttindum farþega með hreyfihömlun voru einnig rædd ásamt áformum um að styrkja áhersluna á fjölbreytileika og inngildingu, en síðara orðið er nýyrði fyrir orðið „inclusion“ sem einnig er þekkt sem, án aðgreiningar.

Umhverfismálin fengu töluverða athygli en áherslur Evrópu eru skýrar varðandi kolefnishlutleysi í flugi árið 2050. Tryggja þarf skýr markmið á þeirri vegferð og skapa aðstæður til að hvati verði til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í alþjóðafluginu er gert ráð fyrir að mestur árangur náist með framleiðslu og notkun á umhverfisvænu flugvélaeldsneyti (Sustainable Aviation Fuels, SAF). Ríki Evrópu eru þessa dagana að undirbúa sig fyrir stóra ráðstefnu í haust á vegum ICAO sem mun einmitt fjalla um skuldbindingar og regluverk í kringum SAF, svokallaða CAAF/3 ráðstefnu (Conference on Alternative Aviation Fuels) sem verður haldin í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum. Áherslur Evrópu eru m.a. að tilgreint verði lágmarkshlutfall SAF í flugvélaeldsneyti á hverjum tíma á heimsvísu.

Málefnin sem tilgreind eru hér að ofan skipta Ísland miklu máli og því mikilvægt að taka þátt í mótun til framtíðar.