Á vísindavef Háskóla Íslands er nokkuð efnismikil grein um það hvort vorboðinn ljúfi í kvæði Jónasar Hallgrímssonar, Ég bið að heilsa, sé lóa eða þröstur. Að ýmsu ber greinilega að huga við þessa greiningu og um að gera að lesa greinina og mynda sér skoðun á því hvort Jónas orti um þröst eða lóu 🙂
En þetta átti ekki að vera gáfumannahornið heldur krútthornið á innri vefnum. Það er nefnilega komið hreiður hér í Ármúlanum sem sést vel úr kaffistofunni á 2. hæð. Þar hefur skógarþröstur valið sér að byggja hreiður og og liggur þar á fjórum myndarlegum eggjum. Spurning um að koma upp vefmyndavél og auka þannig traffíkina á Fésbókinni okkar?
Á fuglavefnum er hægt að fræðast um skógarþröstinn sem og alla aðra fugla sem hafa fasta búsetu á Íslandi eða koma hér við á sumrin. Þar er t.d. hægt að spila hljóðdæmi og tilvalið að nýta sér það og fara í leik með fjölskyldunni í sumar þar sem spiluð eru hljóðdæmi og fólk á að geta til um hvaða fugl sé að ræða.


Ég bið að heilsa
Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi Ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.
Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum.
Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer,
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín,
Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu.
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín.
Jónas Hallgrímson