
Eldur í rafhlöðum um borð í skipum: 1st International symposium on fire in electric storage at sea
Þriðjudaginn 23. maí hélt Samgöngustofa ráðstefnu um hættu, afleiðingar og viðbrögð við rafmagnseldum um borð í skipum. Ráðstefnan var í samvinnu við Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA), Eimskip, DNV, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið Vestmanneyja, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Húsnæðis-og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslu Íslands, Smyril Line og fjölda annarra aðila á Íslandi.
Ráðstefnan var mjög fróðleg og tóku þátt í henni 198 manns bæði á Grand hótel og á vefnun. Erindi voru frá Noregi, Færeyjum, Svíþjóð, Danmörku og frá EMSA í Portúgal. Fulltrúi EMSA og fjöldi annarra lýstu yfir mikill ánægju með ráðstefnuna og vorum við hvött til að halda aðra ráðstefnu á næsta ári með sama hætti.
Ljóst er að um alla Evrópu er þetta áskorun sem margir eru að takast á við og vandamál sem menn eru að reyna finna lausnir við til að bæta öryggi.
Myndir




