Föstudagslagið í boði Sverris


Það er hann Sverrir Konráðsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt skrifar hann:

Ég tók áskoruninni frá Helga Jóhannessyni og vel Take it Easy með Eagles. Upptakan er frá lokatónleikaferð sveitarinnar árið 2004 og nefndist Farewell Tour 1. Hins vegar urðu tónleikaferðirnar fleiri.

Eagles er bandarísk hljómsveit. Hún var stofnuð í Los Angeles árið 1971 af Glenn Frey, Don Henley, Bernie Leadon og Randy Meisner. Ég varð strax aðdáandi þessar sveitar sem söng sig inn í hjörtu landsmanna og alls heimsins með sínum melódísku lögum og skemmtilegum hrynjanda. Þetta flokkaðist undir Country Rock, eða létt rokk. Allir kannast við Hotel California, sem var eitt sinn föstudagslagið hjá okkur, með sínu glæsilega gítarsólói sem er orðið sígilt í rokksögunni.

Sveitin vann Grammy-verðlaunin sex sinnum. Hljómsveitin er í 75. sæti yfir bestu hljómsveitir allra tíma að mati tímaritsins Rolling Stone og á breiðskífu í 37. sæti yfir bestu breiðskífur allra tíma. Þeir eiga jafnframt mest seldu plötu í Bandaríkjunum, Their Greatest Hits 1971-1975.

Eagles hættu í júlí 1980 en tóku aftur saman árið 1994 fyrir breiðskífuna Hell Freezes over. Þeir voru á stífu tónleikaferðalagi síðan þá og komust inn í Rock and Roll Hall of Fame árið 1998. Árið 2007 gáfu þeir út Long Road out of Eden, fyrstu breiðskífu sína í 28 ár. Glenn Frey lést í New York þann 18. janúar 2016 eftir baráttu við veikindi. Eftir andlát Frey ákvað The Eagles að leggja upp laupana árið 2016. Samt sem áður hélt hljómsveitin áfram næsta ár.

Ég skora á Ómar Sveinsson að velja næsta lag.

https://youtu.be/tS2Z12egw1o?t=1