
Það er hann Helgi Jóhannesson sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt segir hann:
Það er gaman að fá þessa áskorun frá Jakobi Andra laganema, einkum vegna þess að þegar ég vann á Siglingastofun Ísland fékk ég laganema á hverju sumri til starfa á mínu sviði. Þeir reyndust afskaplega góðir starfsmenn og starfa nú sem lögfræðingar á ýmsum stöðum í þjóðfélaginu og einn þeirra leikur auk þess nokkuð stórt hlutverk í sjónvarpsseríunni “Afturelding” sem sýnd er á RÚV þessa dagana.
Mörg lög koma upp í hugann hjá mér þegar velja á föstudagslagið; t.d. Bítlarnir, Rolling Stones, Billy Joel, Roger Whittaker, Dubliners og Supertramp.
Ég ætla að velja Bítlalagið “When I´m Sixty four”, einkum vegna þess að samstarfsmaður okkar og stórvinur minn Steingrímur Hauksson, sönglar þetta lag stöðugt þegar maður mætir honum á göngunum og í matsalnum, enda nýorðinn 64 ára.
Lagið var samið árið 1967 af Bítlunum og kom fyrst á plötunni Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band. Paul McCartney og John Lennon eru skrifaðir fyrir laginu, þó er sá fyrrnefndi sagður aðalsmiður þess og syngur það einnig. Þetta er lag sem mikið var gert grín að á sínum tíma. Mörgum þótti lagið hallærislegt því hann samdi það fyrir pabba sinn, en faðir McCartneys varð 64 ára árið sem þeir tóku upp plötuna. Lagið fjallar um ungan mann sem syngur til kærustu sinnar um hvernig þau eldast saman. Lagið er eitt af þeim fyrstu sem McCartney samdi en hann var þá einungis sextán ára gamall.
Ég skora á Sverrir Konráðsson, samstarfsfélaga hér á Samgöngustofu og áður í Siglingastofnun Íslands til 25 ára, gítarleikara, skipstjórnarmann, og löggiltan skjalaþýðanda til að velja næsta föstudagslag.