
Nú er hægt að tilkynna um eigendaskipti rafrænt í gegnum Island.is með mun einfaldari hætti en áður hefur verið. Í kjölfarið (áætlað 8. maí) verður lokað á möguleikann til að skrá eigendaskipti á Mínu svæði Samgöngustofu.
Mikil umsýsla hefur verið í kringum rafrænu eigendaskiptin á Mínu svæði í gegnum tíðina þar sem ferlið hefur ekki verið nægilega notendavænt og skýrt. Í samvinnu við Stafrænt Ísland hefur (vonandi) tekist að sníða í burtu alla galla og gera ferlið eins einfalt og hægt er. Því til stuðnings hafa nú þegar tæplega 70 eigendaskipti verið skráð í gegnum Island.is án vandræða.
Að auki er á Island.is hægt að tilkynna um breytingu á meðeiganda og umráðamanni og panta skráningarskírteini.
Við hvetjum alla starfsmenn til að skrá sig inn á Island.is og skoða sig um.