
Fimmtudaginn 27. apríl hefst þjónustugreining Samgöngustofu, í samstarfi við Stafrænt Ísland, en verkefnið tengist flutningi vefs stofnunarinnar yfir á island.is. Þjónustugreiningin mun m.a. nýtast við skipulag vefsins, uppsetningu þjónustusíðna og fyrirspurnarforms á vefnum, uppsetningu þjónustukerfis og spjallmennis/netspjalls sem tekið verður í notkun á nýja vefnum.
Markmiðið með verkefninu er m.a. að greina hvaða fyrirspurnir og þjónustubeiðnir berast frá okkar viðskiptavinum og hagaðilum sem og hvenær og hverjir hér innanhúss eru að fá slíkar fyrirspurnir. Stafrænt Ísland mun svo greina tölfræðina og skila okkur skýrslu um niðurstöður þjónustugreiningarinnar. Markmiðið er að nýta greininguna til þess að létta á álagi starfsfólks við að svara erindum með vel uppsettum vef, þjónustusíðum, fyrirspurnarformi, þjónustukerfi og spjallmenni.
Kynningarfundur miðvikudaginn 26. apríl
Miðvikudaginn 26. apríl ætla fulltrúar Stafræns Íslands að mæta til okkar til að kynna verkefnið og svara þeim spurningum sem á ykkur brenna. Tveir fundartímar verða í boði: 8:10 – 9:00 og 9:10 – 10:00. Fundarboð hafa verið send út og getur fólk valið á hvorn fundin er mætt.
Hvernig fer vinnan fram?
- Í tvær vikur verða allir starfsmenn Samgöngustofu, sem eru í samskiptum við ytri hagaðila og/eða viðskiptavini stofnunarinnar, beðnir um að færa inn í miðlægt Excel skjal allar spurningar og/eða erindi sem þeim berast í síma, tölvupósti, netspjalli eða eftir öðrum leiðum.
- Starfsfólk sem fær til sín erindi og/eða spurningar þarf að hafa skjalið opið alla daga, á þessu tveggja vikna tímabili, og skráir inn hvaða spurningu/m var svarað eða hvaða þjónusta var veitt. Skjalið verður miðlægt á vefnum og í því eru fyrirfram ákveðnir flokkar sem merkt er við og sumar breytur, eins og tímasetningar og flokkar, koma sjálfkrafa upp. Nánar verður farið yfir skráningu í skjalið á fundinum þann 26. apríl.
Afrakstur vinnunnar
Að þessum tveimur vikum liðnum taka þau hjá Stafrænu Íslandi saman tölfræði og skýrslu sem m.a. nýtast við:
- að forgangsraða því efni sem flutt verður yfir á Island.is
- að koma auga á fyrirspurnir sem almenningur finnur ekki á vefnum
- tryggja samræmi í svörum stofnunarinnar
- setja upp þjónustuvef og fyrirspurnarform
- búa til beinagrind fyrir spjallmennið/netspjallið þannig að það geti svarað sem flestum spurningum
=>Í upphafi verkefnisins mun Bjössi bjóða upp á bröns og „boost“ (27. apríl) til að koma okkur öllum í gírinn. Á lokadag verkefnisins verður boðið uppá grill og ísvagninn í hádeginu til að fagna vel unnu verki 🙂