
Það er hann Jakob Andri sem velur föstudagslagið að þessu sinni:
Eins og flestir þekkja þá er erfitt að velja bara eitt lag til að kynna fyrir samstarfsfólkinu. Ég þekki það hins vegar ekki því valið á þessu lagi var auðveldasta ákvörðun lífs míns. Lagið heitir Prettyboitjokko eftir tónlistarmanninn Patrik Atlason (PATRI!K). Í stuttu máli fjallar lagið um strák sem er úti á lífinu og er að eltast við stelpu en stelpan virðist hafa áhuga á öðrum strák (þekkjum við það ekki flestir?). Við það verður Patrik eitthvað leiður og spyr hann stelpuna, svo ég vitni í texta lagsins, „hvað ertu að gera fyrir þennan fávita?“ Að þessu sögðu þá talar texti lagsins fyrir sig sjálfan og eru þetta orð í tíma töluð. Ég valdi þetta lag því það hefur litað skemmtanalíf mitt síðustu helgar og þið getið verið 100% viss um að sjá mig dilla mér við þetta lag komandi helgar á AUTO Club.
Patrik tókst þá einnig að móðga alla íslenska karlmenn í viðtali hjá K100 en svo ég vitni í viðtalið þá sagði hann þetta: „Það þarf að vera eitthvað „game“ í gangi. Það þarf að vera hiti á þér. Þú þarft að vera með góða lykt. Svo þarftu að vera með eitthvað „drip“ í gangi. Þú þarft að vera með einhvern stíl. Vera í flottum fötum og aðeins að hugsa um útlitið. Það er það sem ég hef verið að impra á. Hjálpa ungum karlmönnum sem og gömlum mönnum. Hey strákar, förum aðeins út fyrir kassann. Aðeins að reyna meira. Ekki vera alltaf í sömu gömlu lufsunum.“ Tökum þetta til okkar strákar.
Endilega gefið þessu lagi eina hlustun.
Ég skora á Helga Jóhannesson úr siglingadeildinni fyrir næsta föstudag