Umferðarslys árið 2022


Öryggis- og fræðsludeild hefur lokið skráningu umferðarslysa í fyrra og út er komin skýrsla um umferðarslys á Íslandi 2022. Slysakortið okkar hefur líka verið uppfært og hér má finna nokkur gröf með slysatölfræði ársins í fyrra.

Árið í fyrra má segja að hafi verið sérstakt. Heildartölurnar voru mjög nálægt því sem þær voru árið áður (þó ívið skárri) en það ár var það versta í langan tíma. Hins vegar eru margir þættir að batna en á móti kemur að rafhlaupahjólin vega á móti öllum árangri sem næst annars staðar. Látnir og alvarlega slasaðir voru 204 í fyrra (samanborið við 208 árið á undan). Af þeim voru 96 gangandi eða hjólandi, þ.e. næstum helmingur, og af þessum 96 voru 49 á rafhlaupahjóli eða rúmlega helmingur. Því var tæpur fjórðungur allra látinna eða alvarlega slasaðra í umferðinni á rafhlaupahjóli. Það þýðir að í staðinn fyrir rúmlega 200 látna og alvarlega slasaðra væru þeir rúmlega 150. Munurinn þarna á milli er einmitt munurinn á því að ná markmiðum okkar og vera gríðarlega langt frá því (eins og við erum nú).

Fjögur gröf, smellið áfram til þess að sjá þau öll:

Í fyrra létust 9 manns í umferðinni eins og árið áður. Af þeim létust fimm innanbæjar en fjórir utan þéttbýlis. Er þetta í fyrsta sinn síðan 1992 sem fleiri látast innan þéttbýlis en utan þess. Af þessum níu manns sem létust voru fjórir fótgangandi, einn á rafhlaupahjóli og fjórir í bifreið. Er þetta í fyrsta sinn síðan 1973 sem meirihluti látinna er í hópi gangandi og hjólandi.

Auk þessara frétta má nefna að ungir ökumenn standa sig mun betur en árið áður og eru aftur komnir á sama ról og þeir voru árið 2020 og áður. Slys vegna ölvunar og fíkniefna eru á pari við markmiðin sem má teljast gott því markmiðin eru nokkuð metnaðarfull.

Erlendu ferðamennirnir voru mjög öryggir í fyrra og þrátt fyrir að fjöldi þeirra hafi verið tæplega 1,7 milljónir þá slösuðust aðeins 75 þeirra. Er þetta langbesti árangurinn sem við höfum séð hvað varðar slasaða ferðamenn m.v. fjölda þeirra á landinu. Hvað varðar alvarlega slasaða ferðamenn þá voru þeir 20 og höfum við aðeins einu sinni séð færri alvarlega slasaða m.v. fjölda ferðamanna á landinu og það var árið 2020 þegar Covid geisaði og þarf að taka með ákveðnum fyrirvara. Þess má einnig geta að Kínverjar slösuðust mjög lítið í fyrra. Það hefur auðvitað dregið úr komum þeirra til landsins en þó svo að við deilum fjölda þeirra sem slösuðust með fjölda þeirra sem hingað kom þá eru Kínverjar á pari við flestar aðrar þjóðir.


Skýrsla um umferðarslys á Íslandi 2022

Slysakort Samgöngustofu

Nokkur gröf um slysatölfræðina í fyrra