Breytt fyrirkomulag við skoðanir á skipum og búnaði þeirra

Innviðaráðuneytið hefur sett drög að tveimur reglugerðum í samráðsgátt, annars vegar nýja reglugerð um skoðanir á skipum og búnaði þeirra, sem kemur í stað reglugerðar sama heitis nr. 1017/2003, og reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 122/2004 um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd

Með reglugerðunum eru gerðar breytingar á fyrirkomulagi við skoðanir skipa. Fyrirkomulag er til samræmis við Höfðaborgarsamþykktina um öryggi fiskiskipa sem íslenska ríkið hefur undirritað. Jafnframt er kerfið til samræmis við það sem gengur og gerist á Norðurlöndum og víðar.

Reglugerð nr. 1017/2003 um skoðanir á skipum og búnaði þeirra, með síðari breytingum, gerir almennt ráð fyrir að skoðanir skipa eigi sér stað með reglulegu millibili á fjögurra ára tímabili. Nefnist eitt slíkt tímabil skoðunarhringur. Skip sem falla alfarið undir alþjóðasamninga og farþegaskip, sem falla undir reglugerð nr. 666/2001, eru í fimm ára skoðunarhring.

Með nýrri reglugerð um skoðanir á skipum og búnaði þeirra er lagt til að öll skip verði færð í fimm ára skoðunarhring. Fer þá stærsta skoðun skips fram á fimm ára fresti í stað fjögurra sem áður var. Með breytingu á reglugerð nr. 122/2004 eru sambærilegar breytingar gerðar.

Samkvæmt reglunum verður ákvörðuð svokölluð afmælisdagsetning sem skoðanir hvers skips skal miðast við. Ákvarðast afmælisdagsetning af gildistíma öxulskoðunar. Almennt má ýmist framkvæma skoðun 3 mánuðum fyrir eða 3 mánuðum eftir þá dagsetningu ár hvert. Þá er afmarkað hvaða skoðanir skulu fara fram á tilteknu tímabili.