
Samkvæmt frétt á vef innviðaráðueneytisins hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, skipað starfshóp um bættar og umhverfisvænar almenningssamgöngur milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins. Verkefni hópsins verður að greina leiðir til að bæta almenningssamgöngur á þessari leið með umhverfisvænum hætti og leggja fram tillögur til úrbóta. Horft verður m.a. til leiðakerfis, þjónustustigs, verðskrár, staðsetningar og umgjörðar biðstöðva og kolefnisfótspors.
Í hópnum eiga sæti fulltrúar ráðuneytisins, Vegagerðarinnar, Isavia, Strætó bs., Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum og Kadeco, þróunarfélag Keflavíkurflugvallar.
Hópnum er ætlað setja fram tillögu að aðgerðaáætlun um úrbætur á næstu þremur árum en jafnframt verður horft til þess að ná umbótum á þjónustunni næsta sumar. Niðurstöður og tillögur að úrbótum fyrir næsta sumar eiga að liggja fyrir í apríl 2023. Tillögur til lengri tíma munu liggja fyrir í september 2023.