Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina

Frétt af ytri vef

Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina fimmtudaginn 8. júní 2023 í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 10:00 til 16:00.

Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu og frumútgáfu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum.

Skráning send með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 29. maí næstkomandi. Tilgreina þarf nafn þátttakanda, skírteinisnúmer, tölvupóstfang og nafn flugrekanda við skráningu.
Þátttakendur eru beðnir um að hafa með sér spjald- eða fartölvu á námskeiðið, ef mögulegt.

Námskeiðsgjaldið er samkvæmt gildandi gjaldskrá Samgöngustofu og er 37.540 kr. Innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.

Athygli er vakin á því að hámark fjölda þátttakenda verður 20 manns og útskriftarskjöl verða send með tölvupósti á viðkomandi aðila.