
Í gær undirrituðu Samgöngustofa og Frumherji nýjan samning um framkvæmd ökuprófa til þriggja ára. Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs þar sem Ríkiskaup, fyrir hönd Samgöngustofu, óskuðu eftir tilboðum í umsjón og utanumhald á framkvæmd skriflegra og verklegra ökuprófa á landinu öllu. Eina tilboðið sem barst var frá Frumherja.