
Í síðustu viku lauk þriggja daga úttekt EFTA Surveillance Authority (ESA) á farmverndarmálum flugverndar. Úttektin gekk vel, bráðarbirgða niðurstöður úttektar eru ánægjulegar og voru engin alvarleg frávik voru greind.
Um flugvernd
Flugvernd er sambland af ráðstöfunum og mannlegum og náttúrulegum úrræðum til að vernda almenningsflug gegn ólöglegum aðgerðum.
Markmið flugverndar í almenningsflugi er að tryggja öryggi farþega, áhafna, starfsfólks flugvalla og almennings með því að nauðsynlegar flugverndarráðstafanir séu innleiddar og viðhafðar á flugvöllum og hjá flugrekendum sem sinna millilandaflugi með farþega, farm, póst og fleira.
Til að ná markmiði flugverndar er það ábyrgð Samgöngustofu að viðhafa nauðsynlegt eftirlit með aðilum sem sjá um framkvæmd flugverndarrástafana eins og t.d. hjá flugvöllum, flugrekendum, flugafgreiðsluaðilum, viðurkenndum umboðsaðilum, þekktum sendendum o.fl. og ganga úr skugga um að þeir hafi innleitt kröfur flugverndar á viðeigandi hátt.
Helstu verkefni flugverndar
- Sjá um samræmingu og uppfærslu reglugerða um flugvernd.
- Móta, koma á og viðhalda flugverndaráætlun Íslands.
- Samþykkja flugverndaráætlanir aðila sem sjá um framkvæmd flugverndar.
- Hafa eftirlit með aðilum sem sjá um framkvæmd flugverndar.
- Móta, koma á og viðhalda gæðakerfi vegna eftirlits með flugvernd.
- Sjá um erlend samskipti vegna flugverndarmála og svara fyrir úttektir erlendra stofnana, t.d. ICAO, ECAC, ESB/ ESA, TSA og Norðurlöndin í gengum NALS.
Ítarlegri upplýsingar um flugvernd má finna á vefnum okkar