Slysatölur í umferð

Öryggis- og fræðsludeild hefur lokið við að skrá umferðarslys fyrstu tíu mánuði síðasta árs. Stefnt er að því að ljúka skráningu ársins snemma í apríl. Í gröfunum hér að neðan gefur að líta tölur fyrir heil ár síðustu ára ásamt spágildi fyrir árið 2022, byggt m.a. á fyrstu tíu mánuðum ársins.

Í fyrra létust eða slösuðust alvarlega 200 manns. Ungu ökumennirnir eru að standa sig mun betur en árið áður og sömuleiðis virðast erlendir ríkisborgarar sem hér eru búsettir lenda í minni vandræðum í umferðinni en árið 2021.

Á hinn bóginn virðist ölvunarslysum fjölga aðeins og eins og við var að búast fjölgar hjólaslysum, einkum og sér í lagi slysum á rafhlaupahjólum.

Slösuðu erlendu ferðafólki fjölgar aðeins á milli ára en m.v. hver fjölgun þeirra var á landinu milli ára þá var hver og einn ferðamaður mun öruggari í fyrra en árið 2021 og talsvert öruggari en hann var fyrir Covid.

Hér má sjá hver þróunin hefur verið á slysum á rafhlaupahjólum ásamt slysum á öðrum gerðum hjóla.