
Napóleonsskjölin er ný íslensk mynd sem er nú sýnd í bíóhúsum landsins. Gaman að segja frá því að í einu atriði myndarinnar má sjá fræðslumyndband frá okkur í bakgrunni. Í atriðinu heyrist vel í Einari Magnúsi leggja okkur línurnar um það hvernig við eigum að fara að til að tryggja öryggi barnanna okkar í bílnum. Hvetjum ykkur til að kíkja eftir þessu ef þið farið og sjáið myndina!