
Samstarfið við Stafrænt Ísland heldur áfram að gefa og nú eru ýmsar upplýsingar um ökutæki landsmanna komnar inn á island.is og í island.is appinu. Það sem ökutækjaeigendur geta gert/séð núna á island.is er:
- Skoðað yfirlit og upplýsingar um ökutæki í sinni eigu/umráðum
- Sótt eignastöðuvottorð og ferilskýrslu
- Skoðað ökutækjaferilinn
- Skráð nafnleynd á/af og flett upp í ökutækjaskrá (5 á dag).
Ýmis verkefni eru svo í farveginum með Stafrænu Íslandi sem hefur verið sagt frá áður eins og flutningur vefsins yfir á island.is og tenging við pósthólf island.is. Við munum flytja nánari fréttir af þeim verkefnum á næstu misserum.
Við hvetjum ykkur til þess að prufa að skrá ykkur inn á island.is og skoða upplýsingarnar um ykkar ökutæki og eins að hala niður islands.is appinu og skoða sömu upplýsinga þar.
Dæmi um upplýsingar um ökutæki í island.is appinu:
