
Í morgun kynnti deild lögfræði og réttinda farþega deildina og helstu verkefni. Þar kom m.a. fram að lögfræðihluti deildarinnar aðstoðar sérfræðinga Samgöngustofu við meðferð mála og töku stjórnvaldsákvarðana og kemur þannig við öll svið stofnunarinnar. Þá er lögfræðihlutinn í miklum samskiptum við innviðaráðuneyti sem óskar eftir umsögnum Samgöngustofu við drög að lögum/reglugerðum og erindum sem berast.
Það kom einnig fram að lögfræðihlutinn hefur að markmiði að tryggja að starfsemi Samgöngustofu rúmist innan gildandi laga og reglna. Deildin heldur regluleg námskeið fyrir starfsmenn stofnunar, m.a. námskeið um stjórnsýslulög, upplýsingalög og Evrópureglur.
Farþegahluti deildarinnar sér um móttöku og afgreiðslu kvartana farþega sem ferðast með loftförum, skipum eða hópferðabifreiðum. Nánast eingöngu er um að ræða kvartanir vegna fluga sem aflýst er eða seinkað. Yfir 700 kvartanir bárust Samgöngutofu á árinu 2022.
Kynninguna má nálgast í heild sinni hér