
Eins og fram hefur komið í fréttum að undanförnu verður leiðtogafundur Evrópuráðsins haldinn í Reykjavík 16. og 17. maí næstkomandi. Þetta er einn umfangsmesti fundur sem íslensk stjórnvöld hafa skipulagt og þarf að huga að mörgu þegar kemur að framkvæmdinni.
Utanríkisráðuneytið leiðir nú starf vinnuhóps til undirbúnings fundarins en talið er að allt að 46 þjóðarleiðtogar muni sækja fundinn. Að undirbúningnum koma auk ráðuneytisins, Ríkislögreglustjóri, Landhelgisgæslan, Faxflóahafnir, Isavia ohf, Isavia ANS, Samgöngustofa o.fl.
Við hjá Samgöngustofu höfum hlutverki að gegna í undirbúningnum og tekur starfsfólk flugleiðsögu-, flugvalla- og flugverndardeildar þátt í undirbúningnum fyrir hönd okkar. Verkefnin sem snúa að okkur eru m.a.:
- Tímabundið flugbann dróna og almannaflugs á ákveðnum svæðum
- Skipulagningu afgreiðslu og stæðaúthlutana loftfara á flugvöllunum í Reykjavík og Keflavík
- Undanþágur vegna flugverndar.