Aukin þekking í geimmálum

Deildarstjóri lögfræðideildar og lögfræðingur flugmála sóttu námskeið í alþjóðlegum geimrétti hjá Geimvísindastofnun Evrópu (ESA – European Space Agency). Námskeiðið var haldið dagana 18. – 20. janúar sl. í Nordwijk í Hollandi. Þátttakendur á námskeiðinu voru rúmlega þrjátíu og komu frá mismunandi löndum. Áberandi margir þátttakenda voru lögfræðingar frá innlendum geimstofnunum sinna landa sem eru (eins og við skiljum það) í flestum tilvikum sjálfstæðar einingar undir því ráðuneyti sem hefur geimmál á sínu ábyrgðarsviði í viðkomandi landi. Fyrirlesarar voru í flestum tilvikum sérfræðingar frá Geimvísindastofnuninni sem og sérfræðingar í geimmálum nokkurra landa. 

Námskeiði var yfirgripsmikið og vandlega farið yfir regluverk geimmála. Í grófum dráttum voru kynningar í alþjóðlegum geimrétti þar sem farið var yfir gildandi  geimsamninga Sameinuðu þjóðanna  s.s. Útgeimssamninginn (The Outer Space Treaty), Samning um björgun geimfara (Rescue & Return Agreement) , Samning um skráningu hluta sem varpað er í himingeiminn (Registration Convention)  o.fl. Þá voru kynningar ýmissa landa á eigin regluverki geimmála, umfjöllun um tryggingamál og áhugaverðar umræður um ýmis álitaefni tengd geimskotum.

Þátttakendur á námskeiðinu fengu þar góða yfirsýn yfir alþjóðasamninga á sviði geimmála auk þess að verða hluti af tengslaneti sérfræðinga geimmála á Norðurlöndum og í Evrópu. 



Sigrún Henríetta og Vala í hópi annarra þátttakenda á námskeiði í alþjóðlegum geimrétti hjá Geimvísindastofnun Evrópu

Vala og Sigrún kynntu sér sjálfkeyrandi ökutæki