Morgunfundur um vetrarþjónustu Vegagerðarinnar

Á morgun, miðvikudaginn 18. janúar frá 9-10, stendur Vegagerðin fyrir morgunfundi um vetrarþjónustu. Fyrirkomulag vetrarþjónustu og starfsemi vaktstöðvar Vegagerðarinnar verða til umfjöllunar og fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja lýsa reynslu sinni af starfseminni um vetur á Íslandi.

Morgunfundurinn verður haldinn í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Opið er á meðan húsrúm leyfir og það verður heitt á könnunni.

Fundinum verður einnig streymt á vef Vegagerðarinnar, www.vegagerdin.is og á Facebook. Streymt verður á eftirfarandi slóð: https://livestream.com/accounts/15827392/events/10739920

Hægt verður að senda inn fyrirspurnir á Slido.com . Lykilorðið er Vetur

Dagskrá fundarins

  • Opnun fundar Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar.
  • Á vaktinni – starfsemi vaktstöðvar. Árni Gísli Árnason, forstöðumaður vöktunar og upplýsinga hjá Vegagerðinni.
  • Fyrirkomulag vetrarþjónustunnar. Einar Pálsson, forstöðumaður vegaþjónustu Vegagerðarinnar.
  • Vetrarþjónusta – Hópbifreiðar. Harald Teitsson, framkvæmdastjóri Teits Jónassonar og formaður hópbílanefndar SAF, heldur erindi. 
  • Vetrarþjónusta – Eru bílaleigubílar fyrir? – Ingi Heiðar Bergþórsson, framkvæmdastjóri þjónustu- og starfsmannasviðs Hertz – Bílaleigu Flugleiða.

Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar. 

Sjá nánar á vef Vegagerðarinnar