
Við höldum áfram með áskorendaröðina á föstudaginn í næstu viku en í upphafi árs er hinsvegar tilvalið að líta yfir árið 2022 og sjá hvaða lög voru vinsælust á því herrans ári. Samkvæmt samantekt Vísis á mest spiluðu lögunum á Spotify á síðasta ári var það Harry Styles sem var vinsælastur en lagið hans As it was af plötunni Harry´s House var stremt rúmlega 1,6 milljarð sinnum á árinu. Styles þessi er fæddur árið 1994 og sló upphaflega í gegn sem meðlimur strákasveitarinnar One Direction eftir þátttöku í breska X Factor árið 2010.
Lagið náði á toppinn í 35 löndum á árinu og náði m.a. þeim merka áfanga að vera 15 vikur samfellt á toppnum á hinum bandaríska Billboard lista. Magnaður árangur það!