
Dómnefndin í jólaskreytingakeppni Samgönustofu lauk störfum í dag og var sigurvegarinn krýndur í morgunkaffinu. Hér er samantekt dómnefndar ásamt myndum og myndböndum neðar:
Níu gagnrýnir samstarfsfélagar lögðu af stað í könnunarleiðangur um ganga Samgöngustofu í gærmorgun…

Þau trítluðu upp stigann í halarófu alla leið upp á þriðju hæð þar sem dásamlegur ilmur af jólaglögg og ristuðum möndlum lokkaði þau inn á stjórnsýsluganginn. Þar voru allir í jólapeysum, búið var að hengja upp skreytingar, greni og jólaseríur og mála jólatré á glugga. Áður en þau héldu för sinni áfram fengu þau ‚live‘ einkatónleika frá stjórnsýslukórnum – VÁ, þvílíkur klassi.
Leiðin lá næst inn á óhugnalegan gang, þar hafði sá græni stolið jólunum og skilið lítið eftir. Starfsmenn á þeim gangi voru greinilega mikið skelkaðir eftir þjófnaðinn svo gagnrýnu samstarfsfélagarnir drifu sig burt…
Þeir trítluðu þá að síðasta ganginum þar sem stórt og mikið skilti blasti við þeim: „Velkomin í jólaskóg!“. Jólaálfarnir í skóginum voru fljótir að stökkva út og taka vel á móti gagnrýnu gestunum. Hver krókur og kimi var skreyttur og lýstur með fallegum seríum, meira að segja gólf og hurðar. Gestirnir gengu þá meðfram ekta grenitrjám og við enda gangsins tóku fleiri jólaálfar á móti þeim og buðu þeim sæti við arineld. Þar var þeim boðið upp á ljúffengt kaffi og vöfflur, smákökur og konfekt sem var mjög heppilegt því þá náðu þau almennilega að jafna sig eftir áfallið á ganginum áður…
Gagnrýnu samstarfsfélagarnir ákváðu þá að skella sér niður á aðra hæð. Þar birtist skyndilega Jóla-Thelma og DJ Fúsi sem sýndu þeim ganginn sinn og kynntu þau fyrir JólaSveinu sem gat reyndar ekkert spjallað því hún var á skíðum. DJ Fúsi hélt uppi stuðinu í stutta stund með jólalögum áður en gestirnir fengu kynningu á jólasafngripum gangsins. Fyrst var það rauður antík-plastpoki sem búið var að líma upp til sýnis og svo var blikkandi jólabindi hangandi á einni skrifstofuhurðinni. Gagnrýnu gestirnir héldu þá för sinni áfram…
Allt benti til þess að sá græni hafi líka stolið jólunum af flug-ganginum. Áður en hann náði öllu þá hefur Orri náð að hrekja hann burt því hann fékk að halda jólapeysunni sinni með ljósum og bjöllum. Gagnrýnu gestirnir drifu sig áfram…
Þeir trítluðu inn síðasta ganginn á annarri hæðinni þar sem þeir fengu frábærar móttökur frá jólaálfum með bjöllur. Gangurinn var einstaklega vel skreyttur og við hverja skrifstofu og skrifborð var að sjá mynd af þeim álfum sem áttu þar heima. —- Á meðan gestirnir gæddu sér á veitingum hvöttu álfarnir alla til þess að lauma pakka undir jólatréið þeirra fyrir börn sem þurfa á hjálp okkar að halda.

Leiðin lá næst niður á fyrstu hæð. Á skjalaganginum tók Kristín Björg á móti gagnrýnu gestunum með skemmtilegum jólasöng og stuttu spjalli. Sá græni hafði ekki náð öllu frá þeim, það voru smá skreytingar eftir…
Gagnrýnu samstarfsfélagarnir trítluðu þá að þjónustuversganginum þar sem þeim var hrósað hægri vinstri af Jóla-Hafsteini: „Vá, þið eruð fallegasti hópur sem ég hef séð!“. Hópurinn brosti út að eyrum þegar þau gengu inn að ganginum þar sem fínt og stórt skilti tók á móti þeim: „Winter Working-Land!“. Þar var allt skreytt með öllu mögulegu: jólaljósum, styttum, kertum, handgerðum snjókornum o.fl. Þeim var svo boðið sæti við arineld og fengu dásamlega ljúffenga köku, konfekt og heitt súkkulaði með sykurpúðum á glæsilegu kaffistelli sem er bara tekið út á jólunum. Nú voru gagnrýnu gestirnir orðnir ansi hamingjusamir eftir könnunarleiðangurinn en rúsínan í pylsuendanum var gjöfin sem þeir fengu frá vetrarlandinu: viskí, viskíglas og tveir galdradrykkir.
Þá var komið að erfiðri ákvörðun, hvernig á að vera hægt að velja besta ganginn? Það er ekki hægt… þess vegna var vinningunum fjölgað í fjóra!
- Fyrir fallega hugsun til barna sem þurfa á hjálp okkar að halda um hátíðirnar hljóta álfarnir á annarri hæð viðurkenninguna „Fallegasta málefnið.“
- Fyrir frábæran söng og góðar móttökur hlýtur stjórnsýslugangurinn viðurkenninguna „Klassísk fegurð.“
- Fyrir snilldar-stemningu og gæða-mútur hlýtur Winter Working-land viðurkenninguna „Stemning og mútur.“
- Fyrir hlýlegar móttökur, ljúffengar veitingar og framúrskarandi skreytingar hljóta álfarnir í jólaskóginum á þriðju hæð fyrstu verðlaun – fyrir jólalegasta ganginn!


















