
Jólaálfarnir á gangi 2A hafa undir áhrifum álfsins hafið söfnun hjá starfsfólki Samgöngustofu til að fara með í hina árlegu pakkasöfnun Kringlunnar.
Álfarnir hvetja starfsfólk Samgöngustofu til að vera með og leggja ykkar að mörkum við að gleðja börn á Íslandi sem búa við bág kjör með því að gefa eina auka gjöf.
Hvað þarf að gera til að vera með?
- Kaupa gjöf fyrir barn á aldrinum 0-18 ára
- Pakka henni inn í jólapappír og koma með pakkann í Ármúla og leggja hann við tréð í miðrýminu á 2. hæð. Merkið pakkann með gjafamiða frá Kringlunni (gjafamiðar verða á 2. hæð) og setjið endurskinsmerki Samgöngustofu á pakkann.
Síðasti dagurinn til að vera með er 17. desember en þann dag mnum við fara með gjafirnar í Kringluna.
Það eru Fjölskylduhjálp Íslands, mæðrastyrksnefnd sem sjá um að koma gjöfunum í réttar hendur.
