
Það er hún Jóhanna Guðný Guðjónsdóttir sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hún:
Mig langaði að heiðra minningu pabba sem lést á árinu, og velja þjóðhátíðarlagið 1997 „Þú veist hvað ég meina mær“ með Skítamóral.
Pabbi samdi textann ásamt 8 öðrum þjóðhátíðarlögum og er þetta mitt uppáhaldslag. Textann má nálgast hér.
Ég skora á Sædísi Jónasdóttur fyrir næstu viku.