Ný frétt: Álfagangur á gangi 2A!

Myndin tengist fréttinni beint

Starfsfólkið á gangi 2A hefur orðið vart við mikinn álfagang undanfarna daga. „Það er ástand við erum öll í sjokki“ segir talsmaður 2A sem ekki vill koma fram undir nafni að svo stöddu.

„Eftir að við byrjuðum að skreyta fyrir jólin bar jólaálf að garði. Við sjáum honum bregða fyrir öðru hvoru. Hann hefur verið að taka snúrur úr sambandi og klárar allt nammið á ganginum. Til dæmis pakkaði hann inn allskonar dóti á skrifborðum starfsfólks á ganginum og tafði vinnu um nokkur skeið.“

Í gær lék álfurinn sér í ísskápnum og margir ráku upp stór augu þegar þeir opnuðu hann (sjá mynd neðar í þessari frétt). Nú er álfurinn búinn að koma sér vel fyrir við inngang 2A og um að gera að kíkja og heilsa upp á kauða. Það er aldrei að vita hverju hann tekur upp á næst. Verið því á varðbergi!

Að lokum: Ef þið sjáið honum bregða fyrir vinsamlegast ekki stíga ofan á hann. Hann gæti fjölgað sér mjög hratt!

Álfurinn á það til að pakka inn ólíklegustu hlutum, eitthvað að misskilja jólapakkahefðirnar
Ekki þægilegt að opna ísskápinn og matvælin hreinlega stara á mann…
Heimili álfsins, farinn að þvo og hengja upp föt fyrir jólin, ákaflega kósí hjá honum…
Dálítið manískur í innpakkningunni fyrir jólin
Gripinn glóðvolgur við að stela nammi úr skreytingum, passið ykkur á því!