Skipulag strandsvæða – umfjöllun Kveiks

Eins og kom fram í föstudagspistli forstjóra þá hafði Kveikur (RÚV) samband við okkur vegna umfjöllunar um uppbyggingu á sjókvíaeldi sem þau voru að vinna að og óskuðu eftir viðtali í því sambandi og í tengslum við umsögn okkar. Að sjálfsögðu brugðumst við vel við því eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Fyrirhugað er að sýna þáttinn á RÚV nú á þriðjudagskvöldið.

Málið varðar skipulag strandsvæða á Austfjörðum og Vestfjörðum og athugasemdir við tillögur þar um. Meðal annarra skilaði Samgöngustofa umsögn. Þar var vakin athygli á mikilvægi þess að við leyfisveitingar um sjókvíaeldi þyrfti fyrst og fremst að tryggja siglingaöryggi. Eftirspurn eftir svæði í flóum og fjörðum til matvælaframleiðslu fer vaxandi en pláss er takmörkuð auðlind. Sjófarendur eiga mikið undir greiðum og öruggum aðgangi að höfnum landsins og áríðandi að öruggar siglingaleiðir séu rétt merktar og án hindrana.

Sjá nánar:

Frétt á vef Skipulagsstofnunnar um hafsskipulag
Athugasemdir við strandsvæðisskipulag Vestfjarða 2022
Athugasemdir við strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022