Lífshlaupið 2022

Lífshlaupið 2022 hefst 2. febrúar nk., skráning hófst í gær 19.jan, vinnustaðakeppnin stendur yfir frá 2. til 22. feb.

Flest þekkjum við þetta góða átak vel og hvetur umhverfishópur öll til að taka þátt.

Á tímum ítrekaðrar innilokunar í sóttkví og/eða einangrun er ómetanlegt að geta farið út og andað að sér fersku lofti t.d. í hressandi göngutúr.

Frekari upplýsingar um Lífshlaupið má sjá í póstinum hér að neðan og á heimasíðu átaksins.