Starfsdagur Umferðarsviðs

Starfsdagur Umferðarsviðs var haldinn eftir hádegi þann 3. nóvember í mötuneyti Samgöngustofu. Gleði og ánægja yfir því að geta loksins hist og verið öll saman sveif yfir vötnum en alls tóku 39 starfsmenn Umferðarsviðs þátt í deginum. Á dagskrá voru stuttar kynningar á deildum og starfsfólki sviðsins en að því loknu var gætt sér á gúmmilaði sem Bjössi kokkur var búinn að undirbúa. Ekki veitti af að fá orku fyrir nákvæmnisvinnuna sem starfsmenn spreyttu sig á við að byggja háan turn út spaghetti og sykurpúðum.

Hópur 2 bar sigur úr býtum og byggði 129,5 cm háan turn, geri aðrir betur! Eftir gúmmilaðipásu númer tvö var skipt í 6 vinnuhópa og unnið var með lykilspurninguna “hvaða umbætur sérð þú fyrir þér á sviðinu/deildinni 2023” og voru umræður tengdar við stefnu Samgöngustofu. Frábærar umræður sköpuðust í hópunum og spennandi verður að vinna úr þeim tillögum. 

Í lok starfsdagsins var tilkynnt um sigurvegara barnamyndakeppni Umferðarsviðs en starfsmenn fengu 2 daga til að ráða fram úr hver er hvað á sviðinu, út frá barnamyndum. Í 2. sæti varð Kristinn Jóhannesson (Tæknimál ökutækja og innviðir) en sigurvegarinn er Íris Hlín Heiðarsdóttir í NorType, en hún hafði 29 myndir réttar af 33.  Að loknum vel heppnuðum starfsdegi var haldið í pizzu og keilu í Egilshöllina.

Myndir frá Spagettiturnakeppninni: