Fréttir af ráðningarmálum

Nýlega var gengið frá tveimur ráðningum. Það er staða deildarstjóra áhafna, skráninga og leyfa (siglingasviði) og aðstoð í mötuneyti (mannauðsdeild).

Helgi Jóhannesson var ráðinn í starf deildarstjóra áhafna, skráninga og leyfa, Helgi tók formlega við starfi deildarstjóra 1. nóv sl., áður var Helgi fagstjóri hjá sömu deild. Helgi Jóhannesson er menntaður lögfræðingur. Starfsreynsla Helga samanstendur aðallega af störfum og stjórnendastörfum innan stjórnsýslunnar, t.a.m. sem deildarstjóri í samgönguráðuneytinu í um 10 ár. Þá starfaði Helgi sem forstöðumaður hjá Siglingastofnun Íslands í um 10 ár.

Örn Arnarson var ráðinn til aðstoðar í mötuneytinu. Örn hefur frá unga aldri unnið ýmis störf tengd sjávarútvegi, hann stofnaði útgerðarfélag og stundaði sjómennsku af krafti til lok árs 2018. Örn hefur starfað sem hafnarstarfsmaður hjá höfnum Snæfellsbæjar til ársloka 2021. Undanfarið hefur Örn starfað í mötuneyti og við veislur og viðburði. Örn hefur störf 7. nóvember.