
Samgöngustofa í samvinnu við Rannsóknarnefnd Samgönguslysa (RNSA) boðar til blaðamannafundar kl. 15:00 á morgun, miðvikudag 2. nóvember, um borð í Sæbjörgu, skólaskipi slysavarnaskóla sjómanna í Reykjavíkurhöfn.
Á blaðamannafundinum verður miðlægt skráningarkerfi, ATVIK – sjómenn, kynnt en það gerir útgerðum kleift að tilkynna slys og atvik tengd sjómönnum rafrænt. Það mun auðvelda útgerðum að uppfylla lagalega tilkynningarskyldu sína en auk þeirra geta sjómenn sjálfir, bæði yfir- og undirmenn, skráð slys og næstum því slys á sjó. Sýnd verða dæmi um atvik þar sem litlu má muna að verði slys.
Tryggingarfélagið VÍS bjó til og þróaði kerfið og veitti RNSA það að gjöf. Kerfið hefur svo verið aðlagað að kerfum RNSA með stuðningi Siglingaráðs og innviðaráðuneytisins. Samgöngustofa mun sjá um notendaþjónustu þess.
Af hverju Atvik-Sjómenn?
Hingað til hafa slys verið skráð hjá þremur aðilum þ.e. rannsóknarnefnd samgönguslysa, lögreglu og hjá Sjúkratryggingum Íslands. Gögn hafa þar af leiðandi ekki verið miðlæg og hafa þau einskorðast við slys með meiðslum. Með tilkomu ATVIK – sjómenn gefst loks kostur á að skrá atvik þar sem næstum því slys á sér stað auk þess sem öll skráning verður nú hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Með því að skrá „næstum því slys” verður hægt að fyrirbyggja að atvikið endurtaki sig með mögulegum alvarlegum afleiðingum.
Náðst hefur ótrúlegur árangur í fækkun alvarlegra slysa á sjó og mörg undanfarin ár hefur ekki orðið banaslys á sjó við Ísland. ATVIK – sjómenn mun verða mikilvægur hlekkur í að tryggja enn meira öryggi til sjós.
Nokkrir áhugaverðir punktar:
- Þótt tekist hafi að fækka og vonandi útrýma banaslysum á sjó þá verða samt á hverju ári á annað hundruð sjómannslys. Oft getur litlu munað að þau verði mjög alvarleg og því þarf að efla öryggismál sjómanna enn frekar.
- ATVIK-sjómenn er nú aðgengilegt öllum útgerðum á Íslandi og veitir yfirsýn yfir atvik, hættur og slys um borð í skipum.
- Með þessu verður til miðlægur tölfræðilegur gagnagrunnur með mikilvægum upplýsingum um atvik, hættur og slys til sjós sem hægt verður að nýta í gagnadrifið forvarnastarf.
- Væntingar eru um að ATVIK-sjómenn efli rannsóknir á sjómannaslysum sem þá munu auka forvarnir sem að lokum leiðir til fækkunar slysa.
- Hér má sjá tölfræði um sjómannaslys – Yfirlit ársins 2021 – sjá bls.15.