Föstudagslagið í boði Stefáns

Review Of: Haddaway – What Is Love | AudiophileParadise

Það er hann Stefán Alfreðsson fagstjóri siglingaverndar sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir Stefán:

Ég hef ákveðið að velja lagið “What is love” með Haddaway.

Lagið “What is love” með Nestor Alexander Haddaway er eitt dansvænsta lag sem samið hefur verið og varð gífurlega vinsælt um allan heim á sínum tíma.

Þetta lag virkar mjög vel á danstaugarnar og líkaminn byrjar ósjálfrátt að hreyfa sig í takt við taktfast lagið með sínu sterka “hljómborðasándi”. Ef einhver kemst ekki í stuð við að heyra lagið mæli ég með því að viðkomandi leiti sér aðstoðar fagfólks. J

Ég skora hér með á Þóru Halldórsdóttur að koma með föstudagslagið í næstu viku.