Námskeið í vistakstri

Eitt af markmiðum grænu skrefanna er að efla umhverfisvitund starfsfólks og draga úr neikvæðum umhverfisháhrifum af starfsemi ríkisins. Í skrefi tvö, undir flokknum Samgöngur er aðgerð sem felur í sér að bjóða öllu starfsfólki kynningu á vistakstri.

Umhverfishópur, með samþykki Jóns Gunnars, hefur samið við Netökuskólann um að bjóða uppá netnámskeið í vistakstri fyrir allt starfsfólk Samgöngustofu.
Við hvetjum ykkur til að nýta þetta góða boð og kynna ykkur vistakstur.
Hér að neðan eru frekari upplýsingar um námskeiðið og leiðbeiningar um innskráningu.

Netnámskeið í vistakstri
Netnámskeið í vistakstri tekur um klukkustund. Vistakstur er mikilvægari en nokkru sinni fyrr og því nauðsynlegt fyrir alla að kynna sér hvað vistakstur er og hvernig við keyrum vistakstur. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og verkefnum og er í fjórum hlutum. Námskeiðið er tilvalið til að uppfylla grænu skrefin þegar kemur að vistakstri.

Hvað er vistakstur? – Fyrir hvern er vistakstur.
Þetta eru ekki einfaldar spurningar en það er þó hægt að svara þeim. Hér verður farið yfir þessar spurningar og ýmislegt fleira sem tengist vistakstri. Má þar nefna hvernig við keyrum vistakstur, mengun af umferð og hver er ávinningurinn. Mikilvægi vistaksturs á tímum hnattrænnar hlýnunar er flestum ljós. Það eru samt ekki allir til í að breyta aksturslagi sínu fyrr en þeir gera sér ljóst hver ávinningurinn er, bæði fyrir veskið og umhverfið. Að ekki sé talað um umferðaröryggið. Vistakstur er fyrir alla og skiptir alla máli.

Markmið með námskeiðinu er að þátttakendur:
o Þekki helstu leiðir til að spara eldsneyti
o Átti sig á áhrifum sem umferðin hefur á umhverfið
o Geti sparað fjármuni og minnkað mengun
o Fækkað slysum og óhöppum

Áherslur
o Hvað er vistakstur
o Hvernig bíl eigum við að velja
o Aksturslag
o Hvað hefur áhrif á eyðslu
o Loftmótstaða
o Losun mengandi efna
o Sparnaður
o Hvað skiptir máli í raun og veru

Námskeiðið eru fjórir stuttir fyrirlestrar, samtals um 45 mínútur. Á eftir hverjum fyrirlestri eru spurningar sem nemandi þarf að svara til að komast í næsta fyrirlestur. Hægt er að skrá sig og taka námskeiðið hvenær sem er sólarhringsins, jafnt á virkum degi sem frídegi.
Þegar nemandi hefur klárað námskeið er honum sent rafrænt viðurkenningarskjal um að hann hafi tekið þátt í námskeiðinu.

Leiðbeiningar fyrir innskráningu:
Farið á síðuna https://www.netokuskolinn.is/onnur-namskeid/skraning-vorur.aspx.
Þar fyllir hver og einn út upplýsingar um sjálfan sig og velur sér lykilorð.
Fyrir miðri skráningarsíðunni er hægt að slá inn fyrirtækjakóða, okkar kóði er SGS
þá kemur fram á greiðslusíðunni að fyrirtækjakóði var notaður og nemandi þarf ekki að hugsa frekar um greiðslu og getur klárað skráninguna.

Eftir nýskráningu er hægt að fara á www.netokuskolinn.is og skrá sig inn vinstra megin á forsíðunni (kennitala er notendanafn, lykilorð var valið í nýskráningu) og fara þaðan inn á námskeiðið.