Heimsókn Jóns Gunnars til Icelandair – myndir

Á föstudaginn heimsótti Jón Gunnar viðhaldsstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli og þjálfunaraðstöðuna í Hafnarfirði með Ómari Þór. Um heimsóknina sagði Jón Gunnar í síðasta föstudagspósti:

„Heimsóknin var mjög fróðleg og gaf mér innsýn inn í þann flókna veruleika sem flugreksturinn er. Í þjálfunaraðstöðunni bauðst mér að prófa flughermi og þá bæði í flugtaki og lendingu. Ég ætla nú ekki að fjölyrða um árangurinn og verð að viðurkenna að ég er mjög sáttur við að vera bara farþegi í því flugi sem gerist í raunheimum.“

Myndir segja meira en mörg orð og hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr heimsókninni:

Hringur sem er tæknimaður flugherma leiðbeinir Jóni Gunnari

Leifur Guðmundsson tæknistjóri Icelandair, Jón Gunnar og Hörður Már Harðarson verkstjóri skýlisins

Jón Gunnar og Ásgeir Bjarni Lárusson framkvæmdastjóri fluherma Icelandair

Hörður, Leifur og Jún Gunnar

Leifur, Sveinn Haukur Albertsson, Jón Gunnar og tveir starfsmenn Icelandair.

Ásgeir Bjarni, Jón Gunnar og Hringur sem undirbýr reykæfingu fyrir Jón Gunnar