Föstudagslagið í boði Leifs Gústafssonar

Í síðustu viku skoraði Pétur Þór Brynjarsson á vinnufélag sinn Leif Gústafsson að velja föstudagslag, sem var að sjálfsögðu vel tekið.

Um val sitt segir Leifur:
Lou Reed samdi og flutti mörg frábær lög eins og Perfect Day, Sweet Jane og Walk on the Wild Side. Ég vel lagið Walk on the wild side (1972). Textinn er magnaður og var brautryðjandi. Það hafði ekki verið algengt að syngja um transfólk eða fólk sem neyddist til að stunda vændi og “öðruvísi fólk” fram að þessu.

Lou Reed var kóngurinn í New York á þessum tíma, vinur Andy Warhol og frægra poppara eins og David Bowie og John Lennon. Hann var töffari út í eitt. Ég mæli líka með með að samstarfsfólk mitt kynni sér líka lag Lou Reed og the Velvet Underground,
Sweet Jane sem er frábært partý-lag með flottari “riff-um” sem hafa verið samin. Væri flott “bið-lag“ í afgreiðslunni hjá okkur 🙂

Blessuð sé minning Lou Reed.

Ég skora á Hörpu Þuríði Böðvarsdóttir að koma með lag næsta föstudag.