Föstudagslagið – Prinsinn

Prins Póló - Hvernig ertu? | RÚV

Í gær var kvaddur merkur listamaður þegar Svavar Pétur Eysteinsson aka Prins Póló var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju. Við tileinkum honum föstudagslagið að þessu sinni. Prins Póló var orðinn þjóðþekktur fyrir sinn feril og á marga smelli sem einkennast af snilldartextum og húmor en oft með alvarlegum undirtón, skemmtilegum heimspekilegum pælingum og þjóðfélagsádeildu:

Líf ertu að grínast

Hann er fagur halur
Magur sem mánudagur
Hann er gríðar svalur
Svag fyrir fínum vínum og vel skipulögðum innri rýmum
Hún er með mikinn sans fyrir smáatriðum
Dansar villta dansa allra kynslóða polka, ræl og valsa
Hann getur ennþá rappað þó að hann sé löngu orðinn pabbi
Hann er með sitt eigið lingó Hann er algert bingó
Hann er sléttur paPPi
Hún er kominn niðrí kjallarann
Dimman og saggafullan
Ætlar að setja í vélina
Og fara vandlega yfir stöðuna
Hver er skjótasta leiðin
Til að græða peninga
Hver er fljótlegasta leiðin
Til að fanga lífshamingjuna
Hvar er núvitundin
Er hún úti með hundinn?
Nei, hér er allt eins og það á að vera
Allir úti að vinna og brjálað að gera
Líf ertu a grínast
Hvað kemst ég langt
Á ég einhver séns að eignast gervipels
Blásanserðan bens án alls estrógens.

Hann er fagur halur
Magur sem mánudagur
Hann er gríðar svalur
Svag fyrir fínum vínum og vel skipulögðum innri rýmum
Hún er með mikinn sans fyrir smáatriðum
Dansar villta dansa allra kynslóða polka, ræl og valsa
Hann getur ennþá rappað þó að hann sé löngu orðinn pabbi
Hann er með sitt eigið lingó Hann er algert bingó
Hann er sléttur paPPi
Hún er kominn niðrí kjallarann
Dimman og saggafullan
Ætlar að setja í vélina
Og fara vandlega yfir stöðuna
Hver er skjótasta leiðin
Til að græða peninga
Hver er fljótlegasta leiðin
Til að fanga lífshamingjuna
Hvar er núvitundin
Er hún úti með hundinn?
Nei, hér er allt eins og það á að vera
Allir úti að vinna og brjálað að gera
Líf ertu a grínast
Hvað kemst ég langt
Á ég einhver séns að eignast gervipels
Blásanserðan bens án alls estrógens.

Hvílík snilld.

VIð tileinkum Prins Póló föstudagslagið að þessu sinni og þá með hans þekktasta lagi sem var titillag kvikmyndarinnar París Norðursins:

Sama lag á tónleikum á Kex hostel: