
Siðareglurnar okkar hafa nú verið birtar á stefnuvef Samgöngustofu. Þeim er ætlað að endurspegla þau viðmið sem við erum sammála um að viðhafa í daglegum störfum og endurspegla gildin okkar: Jákvæðni, fagmennsku, traust og virðingu. Eftir góðar og gagnlegar umræður síðastliðið vor hafa siðareglurnar verið uppfærðar með vísun í siðareglur starfsmanna ríkisins. Uppfærð útgáfa sem send var starfsfólki með tölvupósti 24. júní hefur nú verið birt á stefnuvefnum okkar.
Með siðareglunum er gerð sýnileg sú ábyrgð, heilindi og háttsemi sem sátt er um að viðhöfð sé hjá Samgöngustofu. Vilji er til þess að vinna áfram með siðareglurnar, sem og gildin okkar góðu, þannig að þau verði sýnileg hér innanhúss og þjóni sem vegvísar í samskiptum. Allar hugmyndir um notkun og sýnileika eru vel þegnar, þær má senda í gegnum Bendil.