12 hnútar – Slæmar hefðir

Áfram höldum við að gefa út rafræn veggspjöld í röðinni 12 hnútar sem bæði eru aðgengileg á íslensku og ensku á vefnum okkar. Í veggspjaldi númer 10 er tekið á þeirri hættu sem fylgt getur slæmum og úreldum hefðum. Á veggspjaldinu er nú sem fyrr bent á fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir þær hættur sem af þessu geta stafað. Mikilvægt er að fólk líti ekki á það sem sjálfgefið að tiltekin venja sé besta og öruggasta leiðin. Það er jafnframt mikilvægt að vera óhrædd/ur við að gagnrýna og endurskoða hefðir. 

„Æ þetta hefur alltaf virkað og ætti að gera það núna”. Þessi setning er ágætt dæmi um venjur sem fólk virðist ekki sjá ástæðu til að endurskoða. Þær hafa jú alltaf virkað þótt þær geti jafnvel verið á skjön við öryggisviðmið, reglur og viðhorf.