
Árleg Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2022 verður haldin föstudaginn 28. október á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30.
Dagskráin er fjölbreytt að vanda og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Sextán rannsóknaverkefni verða til umfjöllunar og samhliða veggspjaldasýning með um tíu verkefnum.
Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.
Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2021.
Opnað hefur verið fyrir skráningar.
Almenn skráning – smelltu á hlekkinn.
Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:
| 09:00 | Setning ráðstefnu, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar |
| 09:10 | Byggjum grænni framtíð: Leiðin að vistvænni mannvirkjagerð, Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri Byggjum grænni framtíð og teymisstjóri nýsköpunnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar |
| 09:30 | Aukið hlutfall á endurunnu malbiki í ný slitlög, Björk Úlfarsdóttir, Colas Ísland |
| 09:45 | Leir í malarslitlögum, Hafdís Eygló Jónsdóttir, Vegagerðin |
| 10:00 | ROADEX rannsóknir á umferðarminni vegum, Þorbjörg Sævarsdóttir, Vegagerðin |
| 10:15 | Hlé |
| 10:45 | Ný tenging milli forsteypts stöpulveggjar og staðsteypts sökkuls, Franz Sigurjónsson, Háskóli Íslands |
| 11:00 | Betri kostnaðaráætlanir, Baldvin Einarsson og Guðrún María Guðjónsdóttir, EFLA |
| 11:15 | Staðsetningar- og eftirlitskerfi fyrir baujur sem nýtir DGNSS og LoraWan fjarskipti, Þorsteinn Sæmundsson, Háskóli Íslands |
| 11:30 | Fyrirspurnir |
| 11:45 | Hádegishlé |
| 13:00 | Samgöngumat-grunnur að leiðbeiningum, Ólöf Kristjánsdóttir, Mannvit, og Cecilía Þórðardóttir, Velocity Transport Planning |
| 13:15 | Vinstribeygjur – Slysagreining á mismunandi útfærslum varinna vinstribeygjufasa á ljósastýrðum gatnamótum höfuðborgarsvæðisins, Davíð Guðbergsson, VSÓ Ráðgjöf |
| 13:30 | Samanburður á ferðatíma Strætó og einkabílsins innan höfuðborgarsvæðisins, Daði Baldur Ottósson, EFLA |
| 13:45 | Deiliskipulag þjóðvega í þéttbýli, Andrea Kristinsdóttir, VSÓ Ráðgjöf |
| 14:00 | Kortlagning hávaða með CNOSSOS-EU, Ólafur Hafstein Pjetursson, Trivium ráðgjöf |
| 14:15 | Brýr í hringrásarhagkerfi, Magnús Arason, EFLA |
| 14:30 | Fyrirspurnir |
| 14:45 | Hlé |
| 15:15 | Strandlínubreytingar á Suðausturlandi frá 1903 til 2021, Ingibjörg Jónsdóttir, Háskóli Íslands |
| 15:30 | Notkun fjarkönnunargagna til að ákvarða þröskulda fyrir skriðuhættu á Íslandi, Esther Hlíðar Jensen, Veðurstofan |
| 15:45 | Rannsóknir og vöktun á hreyfingum við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga með síritandi GNSS staðsetningatækni, Halldór Geirsson, Háskóli Íslands |
| 16:00 | Rannsóknir á tengslum veðurfarsbreytinga og hreyfinga á og við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga, Elías Arnar Nínuson, Háskóli Íslands |
| 16:15 | Fyrirspurnir |
| 16:30 | Ráðstefnuslit – léttar veitingar |