
Samgöngustofa gerði í byrjun árs samkomulag við EASA um vinnu við eftirlit á viðhaldsfyrirtækjum loftfara víðs vegar um heiminn. Verkefnið er unnið af lofthæfideild Samgöngustofu sem Ómar Þór Edvardsson stýrir. EASA leitaði til Samgöngustofu með aðkomu íslenskra sérfræðinga í byrjun árs en við það að Bretland fór úr Evrópusambandinu jókst umsýsla EASA til muna þar sem u.þ.b 500 ný fyrirtæki bættust við í umfang EASA.
Samið var um að Samgöngustofu myndi taka að sér að vinna 240 klukkustundir á árinu 2022 og hafa nú þegar verið farnar fjórar ferðir á vegum EASA hjá sérfræðingum lofthæfideildar. Verkefnið hefur farið vel af stað og er þetta mjög gott tækifæri fyrir starfsfólk Samgöngustofu að kynnast nýjum aðstæðum og sérfræðingum á erlendri grundu.
Á dögunum var haldinn fundur hjá EASA í Köln þar sem voru samankomnir starfsmenn eftirlitsstofnana víðs vegar að, að ræða fjármálahluta verkefnisins. Á fundinn mættu Rut og Edda frá Samgöngustofu og kynntu þær fyrir þátttakendum hvernig það er að vera nýliði á þessum vettvangi. Við getum verið stolt af aðkomu okkar að þessu alþjóðlega verkefni sem gerir störf okkar fjölbreyttari og skemmtilegri.