Eftirlit með skráðum lendingarstöðum

Starfsfólk Samgöngustofu sinnir eftirliti víða um land og reyndar lönd ef út í það er farið. Fyrr í mánuðinum fóru þeir Tómas Björn Ólafsson og Sigurjón Hreinsson í eftirlit á Vestfjarðarkjálkanum og tóku út lendingarstaði á Reykhólum og Hólmavík. Myndin er tekin á flugvellinum á Hólmavík af þeim félögum en þeir starfa í deild Flugleiðsögu, flugvöllum og flugvernd.

Um 50 skráðir lendingarstaðir eru á Íslandi en nálgast má upplýsingar um þá í AIP um skráða lendingarstaði. Á vef Isavia má einnig nálgast upplýsingar um hvernig Isavia skiptir upp sínum lendingarstöðum milli umdæma en að auki má sjá þar nokkra lendingarstaði sem eru í einkaeigu eða í eigu félagasamtaka.

Arnór Magnússon fráfarandi umdæmisstjóri Isavia innanlandsflugvalla ehf. fyrir umdæmi 2 sem nær yfir áætlunarflugvelli og lendingarstaði á Vestfjörðum. Eftirlitsmenn Samgöngustofu hafa átt mjög farsælt samstarf við hann í gegnum árin. Á myndinni heldur hann á undirstöðu, sem notuð er til að halda föstum netabelgjum, sem eru gjarnan notaðir sem „markar“ til að sýna útlínur flugbraut lendingarstaða.

Tómas Sigurgeirsson, bóndi að Reykhólum, ásamt vindpoka flugbrautarinnar og aðstöðuskúr. Tómas hefur umsjón með lendingarstaðnum Reykhólum. Hann fylgist t.d. með því hvort girðing umhverfis flugbrautina sé ósködduð og hlið hennar lokuð, svo að engin óviðkomandi umferð komist inn á flugvallarsvæðið. Einnig sinnir hann grasslætti öryggisvæða brautarinnar.