Heimsókn frá bandarísku strandgæslunni

Sérfræðingar Samgöngustofu í siglingavernd héldu í vikunni fund með fulltrúum bandarísku strandgæslunnar (USCG). Í framhaldinu var litið inn til nokkurra hafna og eins og sjá má er meðfylgjandi mynd tekin á Akureyri. Heimsókn USCG er liður í mikilvægu samstarfi og samráði þjóðanna í þágu farsællar framkvæmdar siglingaverndar. Þessar heimsóknir eru gagnkvæmar og nánast árvissar.