Almenn viðvera á dag er 7 klst. og 12 mínútur og er miðað við að unnið sé á tímabilinu frá kl. 08:00 til kl. 17:00. Starfsfólki er, í samráði við næsta yfirmann, heimilt að safna styttingu saman í hálfan eða heilan frídag en sú frítaka þarf að vera skipulögð með góðum fyrirvara.
Kynning á styttingu vinnuvikunnar hjá Samgöngustofu – lengri útgáfa
• Hægt er taka styttingu út í hádegi til að fara t.d. í líkamsrækt eða göngutúr.
• Stytta má viðveru hvers dags.
• Í samráði við næsta yfirmann, má safna styttingunni saman í hálfan eða heilan frídag, skal skipulagt með góðum fyrirvara.
• Ef stytting er tekin út sem heill dagur þá þarf að vanda skráningu í Vinnustund: skráð sem stimplun frá 08:00 til 08:00 á frídeginum, notið merking stofnunar „stytting viðveru tekin út“.
• Uppgjörstímabil í Vinnustund er það sama og áður (16.-15.).
• Klára þarf styttingu innan hvers uppgjörstímabils. Ef starfsfólk nær ekki að stytta viðveru sína á tímabilinu vegna mikils álags hefur yfirmaður heimild til að dreifa styttingu yfir á næsta tímabil í samráði við mannauðsdeild, eftir það fyrnist styttingin.
• Ekki má safna styttingu upp í nokkra daga né lengja orlof starfsfólks.
• Starfsfólk fær styttingu ekki greidda út.
• Ábyrgð á viðveru er á höndum starfsfólks, mælt er með að fylgjast reglulega með vinnuskilum á meðan nýr taktur venst.
Starfsfólk samþykkti að grein 3.1 í kjarasamningum um matar- og kaffitíma á dagvinnutímabili yrði gerð óvirk. Því verða kaffi- og matartímar í öðru formi en áður hefur þekkst og skrepp frá vinnu á kostnað vinnuveitanda heyra sögunni til. Starfsfólk þarf að vera meðvitað um að þegar það fer út úr húsi þá á að stimpla sig út.
• Heimilt er að taka sér hlé til að borða í um 15-20 mínútur á starfsstöðvum Samgöngustofu án þess að stimpla sig út.
• Heimilt er að fá sér kaffibolla eða aðra hressingu í kaffirýmum innan skynsamlegra marka.
• Starfsmaður sem hyggst fara út úr húsi í hádeginu þarf að stimpla sig út og aftur inn þegar hann mætir til starfa.
• vegna læknisheimsóknar eða tannlæknatíma?
já, en laga má tímana eftir á
• sjúkraþjálfunar / tíma hjá kíropraktor / nudd osfrv.?
Já, en laga má tímana eftir á
• vegna læknisheimsóknar með barn?
Já, en laga má tímana eftir á
• vegna foreldraviðtals eða skemmtunar barns í skóla?
Já, telst ekki hluti af vinnutíma en var áður hluti af sveigjanleika
• ef maður fer út úr húsi í hádegismat?
Já, telst ekki hluti af vinnutíma
• ef maður notar styttingu til að stunda hreyfingu?
Já, telst ekki hluti af vinnutíma
• þegar maður fer í jarðarför?
Já, en ef jarðaför er hjá nákomnum þá má leiðrétta skráningu eftir á.
• ef maður fer út að reykja / veipa?
Já og fara út af lóðinni, reykingar á lóðinni eru óheimilar
Athugið að ávinnsla orlofs miðast við 36 stundir á viku, alls 216 stundir í ávinnslu á ári í fullu starfi. Þegar skráð er orlof á starfsmann þá miðast úttekt við vinnuskyldu, ekki viðveru.