EMSA 20 ára

Í dag eru liðin 20 ár síðan Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA) var sett á stofn með Evróputilskipun Nr. 1406/2002 þann 27. júní 2002. Af þessu tilefni hefur EMSA opnað sérstaka vefsíðu þar sem tímamótanna er minnst, sagan rifjuð upp og fjallað er um hlutverk stofnunarinnar. Nýjasta tölublað fréttabréfs EMSA er einnig tileinkað þessum tímamótum.


Nánar um EMSA

Ísland er aukaaðili að Siglingaöryggisstofnun Evrópu – EMSA í gegnum EES-samninginn. EMSA (Euroopean Maritime Safety Agancy) stuðlar að því að komið verði á betra samstarfi milli aðildarríkja ESB, Noregs og Íslands og þróar og miðlar bestu starfsvenjum. Það stuðlar aftur að því að efla í heild sinni siglingaöryggiskerfi auk þess að draga úr hættunni á sjóslysum, sjávarmengun og mannskaða á sjó.

Siglingaöryggisstofnunin gegnir hlutverki tækniaðila sem sér Evrópusambandinu og aðildarríkjum stofnunarinnar fyrir nauðsynlegum úrræðum til að herða með skilvirkum hætti reglur um almennt siglingaöryggi og varnir gegn mengun frá skipum. Stofnunin aðstoðar framkvæmdastjórn ESB við það verkefni að uppfæra og þróa löggjöf Bandalagsins á sviði siglingaöryggis og varna gegn mengun frá skipum. Hún veitir einnig stuðning til að tryggja samleitna og skilvirka framkvæmd slíkrar löggjafar í aðildarríkjunum.

Til að störf, sem stofnuninni eru falin, séu vel af hendi leyst heimsækja starfsmenn hennar aðildarríkin til að fylgjast með því hvernig kerfi siglingaöryggis og varna gegn mengun frá skipum starfa í heild sinni. Þessar heimsóknir fara fram í samræmi við stefnu sem stjórn stofnunarinnar setur og skulu stjórnvöld aðildarríkjanna greiða fyrir þeim.